Samkeppniseftirlitið óskar eftir sjónarmiðum almennings og fyrirtækja varðandi áhrif samruna Haga og Olís annars vegar og samruna N1 og Festis hins vegar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. Í tilkynningunni segir að um sé að ræða samruna á mörkuðum sem varða almenning. Til að gefa almenningi og öðrum hagaðilum kost á að kynna sér málin hefur Samkeppniseftirlitið birt samrunatilkynningar málanna á heimasíðu sinni.
Í báðum málunum ber Samkeppniseftirlitinu að rannsaka hvort viðkomandi samruni hindri virka samkeppni með því að markaðsráðandi staða eins eða fleiri fyrirtækja verði til eða slík staða styrkist, eða að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti.
Eftirfarandi atriði eru til skoðunar:
Er þess óskað að sjónarmið berist Samkeppniseftirlitinu eigi síðar en 7. desember næstkomandi. Hægt er að senda þau á netfangið samkeppni@samkeppni.is.