Undirbúningur fyrir stofnun samfélagsbanka á Íslandi hefur staðið í stað vegna lagalegra hindrana. Talsmaður verkefnisins segir verkefnið sé nánast óframkvæmanlegt eins og staðan er í dag
„Það er búið að skrifa hindranir inn í lögin. Til dæmis hljóðar fyrsta grein laga um fjármálastarfsemi á Íslandi þannig að banki skuli vera hlutafélag. Þá er búið að útiloka alla aðra möguleika,“ segir Hólmsteinn Brekkan, framkvæmdastjóri Samtaka leigjenda á Íslandi, en hann vinnur að undirbúningi verkefnisins. „Við höfum reynt að finna aðrar leiðir innan lagarammans og munum halda því áfram en það hefur hreinlega ekki gengið hingað til.“
Samfélagsbanki er banki sem sinnir eingöngu viðskiptabankastarfsemi, þ.e. innlánum útlánum, færsluþjónustu o.s.frv. Það er enginn eiginlegur eigandi því hann er rekinn sem sjálfseignarstofnun sem sinnir nærumhverfinu.
Hólmsteinn segir að undirbúningshópur verkefnisins hafi fengið viljayfirlýsingu frá Sparkassen, þýska samfélagsbankanum, um að veita þekkingarlegan og tæknilegan stuðning. Stjórnvöld þurfi hins vegar að breyta lagarammanum til þess að unnt sé að hrinda þessu í verk. „Þetta er nánast óframkvæmanlegt eins og sakir standa.“
Hólmsteinn vann einnig að stofnun óhagnaðardrifins leigufélags í Reykjanesbæ, Íbúðafélags Suðurnesja hsf., sem var stofnað í september 2017. Aftur hindraði kerfið framgöngu verkefnisins og nú 6 mánuðum síðar hefur félagið hvorki fengið kennitölu né skráningu. Hólmsteinn segir að frá því í september til dagsins í dag hafa farið um 200 vinnustundir, lögfræðivinna og annar kostnaður í að reyna að útbúa samþykktir fyrir embætti ríkisskattstjóra sem samræmast lögunum. Samþykktir hafi verið endurunnar að minnsta kosti fimm sinnum og vinnuskjölin séu um þúsund blaðsíður.
„Það er fullur skilningur á því að Ríkisskattstjóri hafi ekkert annað til að fara eftir en lög sem eru meingölluð. Það eru engar reglugerðir og engin tilmæli frá ráðuneytinu um hvernig þessu skuli háttað.“
Spurður um lagalegar hindranir nefnir Hólmsteinn að lögin séu einskorðuð við búseturétt.
„Munurinn á búseturétti og leigurétti er sá að búseturéttur er verslunarvara en ekki leiguréttur. Það er algjörlega óheimilt að versla með leigurétt en þú mátt gera það með búseturétt. Það er óheppilegt að binda löggjöf við eitthvað eitt form,“ segir Hólmsteinn. „Og talandi um þekkingarleysi hafa þingmenn kallað eftir víðtækari lausnum á húsnæðismarkaðinun en hafa engan skilning á því að löggjöfin er ekki til staðar.