Stjórnvöld í Argentínu hafa leitað á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í því skyni að koma í veg fyrir að niðursveiflan í hagkerfinu magnist frekar. Þau munu óska eftir láni að fjárhæð 30 milljarðar Bandaríkjadala, eða jafngildi 3.100 milljarða króna.
Mauricio Macri forseti staðfesti í ávarpi til argentínsku þjóðarinnar í gær að hann hefði rætt við Christinu Lagarde, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, um að hefja samningaviðræður, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.
Greint var frá því í síðustu viku að seðlabanki Argentínu hefði hækkað stýrivexti í þriðja skiptið á átta dögum, að því sinni upp í 40%. Það var viðbragð við því að virði argentínska pesóans hefði fallið mikið að undanförnu en á síðustu tólf mánuðum hefur pesóinn glatað fjórðungi af virði sínu.
Verðbólga hefur lengi verið vandamál í Argentínu og var 25% á síðasta ár, sú hæsta í Suður-Ameríku fyrir utan Venesúela.
Sautján ár eru frá gjaldfalli Argentínu og kenna margir Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um og þeirri efnahagsstefnu sem hann átti þátt í að innleiða.