Ivanka Trump, dóttir Donald Trump Bandaríkjaforseta, tilkynnti í dag að tískufyrirtæki hennar hafi lagt upp laupana. Fyrirtækið hefur verið harðlega gagnrýnt af andstæðingum föður hennar.
Sala á vörum úr tískulínunni gekk vel fram að forsetakosningunum 2016 en í kjölfar þess að Trump tók við sem forseti varð mikill samdráttur í sölunni.
Til að mynda tilkynnti stórverslanakeðjan Nordstrom að hún hefði ákveðið að hætta að selja vörulínu forsetadótturinnar í byrjun árs 2017.
Á svipuðum tíma var greint frá því að 44% af vörum í tískulínu hennar væru komnar á útsölu á netverslunum í Bandaríkjunum. Meðalverðlækkunin á vörum frá Trump var 49%.
Ivanka Trump starfar nú sem aðstoðarmaður föður síns.