Drífa Snædal, stjórnarmaður hjá Íbúðalánasjóði, tilkynnti félags- og jafnréttismálaráðherra í dag úrsögn sína úr stjórn Íbúðalánasjóðs.
Tekur úrsögnin gildi frá og með deginum í dag.
Í tilkynningunni, sem var send til kauphallarinnar, kemur jafnframt fram að hún þakkar það traust sem henni hefur verið sýnt í þau ríflega fjögur ár sem hún hefur setið í stjórninni.