Tyrknesk yfirvöld hækkuðu tolla verulega á nokkrar bandarískar vörur í morgun en um svar Tyrkja við refsiaðgerðum bandarískra yfirvalda er að ræða.
Refsiaðgerðir Bandaríkjanna hafa haft mikil áhrif á gengi tyrknesku lírunnar en hún hefur fallið mjög frá því tilkynnt var um refsiaðgerðirnar.