Óvíst er hvort fækkað verði í flugflota WOW air ef kaup Icelandair á WOW air ganga eftir en þau eru gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Icelandair Group, samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Fullyrti er á vef Víkurfrétta að WOW þurfi að leggja átta af 20 þotum sem félagið er með á leigu.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, sagði í svari við fyrirspurn mbl.is að eins og staðan væri núna lægju upplýsingar ekki fyrir.