Nikkei-hlutabréfavísitalan lækkaði um rúm 3% í Tókýó í dag og svipaða sögu er að segja af öðrum mörkuðum í Asíu. Ástæðan er versnandi horfur í efnahagsmálum heimsins. Lækkunin í dag kemur í kjölfar lækkunar á hlutabréfamörkuðum vestanhafs á föstudagskvöldið.
Fjárfestar og sérfræðingar eru farnir að óttast að efnahagslægð sé í uppsiglingu og hafði ávöxtunarferill bandarískra ríkisskuldabréfa á föstudag mikil áhrif á gang mála á Wall Street á föstudaginn.