Creditinfo gefur á hverju ári út lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Listinn er kynntur á viðburði í Hörpu nú síðdegis og er það í tíunda sinn sem það er gert.
Meðal þeirra sem fram koma á viðburðinum eru Brynja Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra.
Á viðburðinum verða m.a. veitt verðalun fyrir framúrskarandi árangur á sviði nýsköpunar og samfélagsábyrgðar.
Hér að neðan mátti fylgjast með beinni útsendingu frá athöfninni í Hörpu.