Ástralski bankinn Westpac á yfir höfði sér háa fjársekt fyrir peningaþvætti. Samkvæmt tilkynningu frá áströlskum yfirvöldum í morgun hefur verið tekin ákvörðun um að stefna Westpac fyrir dóm fyrir að hafa brotið lög um peningaþvætti. Um er að ræða yfir sjö milljarða Bandaríkjadala.
Í tilkynningu frá AUSTRAC, sem er alríkisstofnun sem rannsakar fjármálabrot, kemur fram að Westpac hafi ekki tilkynnt um millifærslur á milli landa, þar á meðal fé sem talið er að rekja megi til barnaþrælkunar. Alls er talið að bankinn hafi brotið lög um peningaþvætti 23 milljón sinnum.
Hlutabréf Westpac lækkuðu um 3,3% þegar tilkynnt var um málið.