Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um hálft prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 2,25%. Þetta eru lægstu meginvextir bankans frá því verðbólgumarkmið var tekið upp árið 2001.
Jafnframt hefur nefndin ákveðið að lækka meðaltalsbindiskyldu innlánsstofnana úr 1% niður í 0%. Föst bindiskylda verður áfram 1%. Lækkun meðaltalsbindiskyldunnar og breytt meðferð á föstu bindiskyldunni í lausafjárreglum munu rýmka lausafjárstöðu bankanna og auka svigrúm þeirra til að bregðast við breyttum aðstæðum í þjóðarbúskapnum.
Ákvörðun nefndarinnar var flýtt um viku, en Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði í samtali við ViðskiptaMoggann fyrr í mánuðinum að bankinn væri reiðubúinn að grípa til þeirra aðgerða sem þurfi til að tryggja lausafé í fjármálakerfinu. Í tilkynningu nefndarinnar segir að með þessum aðgerðum er slakað nokkuð á taumhaldi peningastefnunnar í ljósi versnandi efnahagshorfa í kjölfar aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar.
Seðlabanki Bretlands lækkaði stýrivexti sömuleiðis í morgun um hálft prósentustig og eru meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, 0,25%.
Viðbúið er að útbreiðsla kórónuveirunnar muni hafa talsverð áhrif á íslenskt efnahagslíf til skamms tíma. Í gær kynnti ríkisstjórnin aðgerðir sem ráðist verður í til að mæta efnahagslegum áhrifum af útbreiðslu kórónuveirunnar sem munu til að mynda gagnast til að brúa bilið fyrir fyrirtæki sem lendi í rekstrarerfiðleikum.
Peningastefnunefndin mun áfram fylgjast grannt með framvindu efnahagsmála og nota þau tæki sem nefndin hefur yfir að ráða til að styðja við þjóðarbúskapinn.