Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands með stöðugum horfum. Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðsins.
S&P reiknar með efnahagsbata á næsta ári eftir 7,8% samdrátt hagkerfisins í ár. Þótt orðið hafi verulegt högg í ferðaþjónustu gerir matsfyrirtækið ráð fyrir að afgangur verði á viðskiptajöfnuði næstu árin.
Þrátt fyrir verulegan stuðning opinberra fjármála við hagkerfið gegn áhrifum faraldursins gerir matsfyrirtækið ráð fyrir að stjórnvöldum takist að rétta af opinber fjármál eftir 2021. Í því samhengi lítur matsfyrirtækið til árangurs í þeim efnum síðasta áratug en sterk ytri staða veitir hagkerfinu frekari viðnámsþrótt.
Fram kemur í fréttatilkynningu S&P að lánshæfismat ríkissjóðs gæti hækkað ef efnahagsbatinn frá heimsfaraldrinum verður umfram væntingar og leiðir til aukinnar fjölbreytni í íslensku efnahagslífi og útflutningi sem draga myndi úr sveiflum í viðskiptakjörum. Við slíkar aðstæður gæti orðið hraðari viðsnúningur í ríkisfjármálum.
Þá gæti lánshæfismat ríkissjóðs lækkað ef heimsfaraldurinn veldur varanlegra tjóni á framleiðslugetu hagkerfisins en gert er ráð fyrir og ef það hefði í för með sér verulega hækkun opinberra skulda sem hlutfall af landsframleiðslu umfram væntingar.