Örn Thomsen, framkvæmdastjóri Arctic Trucks Norge, segir fyrirtækið hafa breytt 275 bílum í fyrra sem sé met.
„Við lukum við nýja heimasíðu í maí [2020] og þótt bílasalan hafi verið lítil náðum við að auka netsölu beint til einkaaðila. Fyrir vikið jókst sala aukahluta um næstum 30% milli ára. Árið 2021 var þetta farið að snúast við en í desember 2020 komu inn nýir bílar frá Isuzu sem seldust mjög vel. Þá kom nýr mótor hjá Toyota Hilux og Land Cruiser með nýjum módelum og þeir bílar seldust líka vel. Þannig að árið 2021 verður afskaplega gott ár í rekstrinum.
Lestu ítarlegt viðtal við Örn í ViðskiptaMogganum í dag.