Flugtak flugfélagsins Play hefur reynst þyngra en búist var við í upphafi. Tekjur félagsins eru minni en gert var ráð fyrir og þá hefur hækkandi eldsneytiskostnaður vegið þungt.
Þetta kemur fram í viðtali við Birgi Jónsson, forstjóra Play, í nýjasta þætti Dagmála sem sýndur er á mbl.is í dag.
Birgir segir að hann og aðrir stjórnendur félagsins hafi verið fullbjartsýnir á hraða tekjumyndun félagsins en þær áætlanir hafi ekki gengið eftir. Það taki tíma fyrir nýtt vörumerki að vinna sér markaðshlutdeild. Hann hefur þó fulla trú á viðskiptamódeli félagsins og segir að um 30% Íslendinga sem fóru til útlanda í sumar hafi kosið að ferðast með Play. Birgir segir jafnframt að rekstur félagsins verði lagaður að aðstæðum hverju sinni og val á áfangastöðum taki mið af þeirri eftirspurn sem er til staðar. Hann segir þó að enn sé stefnt að því að hafa tíu vélar í rekstri næsta sumar.
Í viðtalinu er einnig fjallað um fyrirhugaða hlutafjáraukningu félagsins og áleitnar spurningar sem hafa komið upp vegna hennar, til dæmis um jafnræði milli hluthafa.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag og hægt er að horfa á Dagmál hér að neðan.