Seðlabankinn heldur kynningarfund með fulltrúum fjölmiðla og fjármálafyrirtækja í tilefni af yfirlýsingu peningastefnunefndar og útgáfu Peningamála.
Ákveðið var að hækka vexti bankans um 0,25 prósentustig.
Hægt er að fylgjast með fundinum á mbl.is í beinni útsendingu:
Yfirlýsing peningastefnunefndar var birt kl. 8.30. Ritið Peningamál var svo birt á vefnum kl. 8.35. Vefútsending með kynningu á yfirlýsingu nefndarinnar hefst svo kl. 9.30.
Á kynningarfundinum gera Ásgeirs Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og kynna efni Peningamála.