Nýskráningum einstaklinga og fyrirtækja á vanskilaskrá hefur fjölgað á liðnum mánuðum.
Þetta kemur fram í nýrri greiningu Creditinfo sem fjallað er um í Morgunblaðinu í dag.
Þau fyrirtæki sem urðu gjaldþrota voru óvenju fá á síðasta ári. Aftur á móti hefur gjaldþrotum fyrirtækja fjölgað hratt á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Fjöldi þeirra fyrirtækja sem hafa orðið gjaldþrota það sem af er ári er umtalsvert meiri en allt árið í fyrra.