Krefjast þess að þing komi saman

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þingflokkur Viðreisnar hefur nú farið fram á að Alþingi verði kallað saman til þess að ræða niðurstöðu FME um lögbrot við sölu Íslandsbanka.

Þá verði einnig tekin afstaða til tillögu um skipan rannsóknarnefndar til þess að kanna málsatvik sölunnar og ferils hennar frá byrjun.

Þessu er greint frá í tilkynningu frá Viðreisn.

Fram kemur að þingmenn telji stöðuna alvarlega og mikilvægt að hún sé rædd. Bent er á að forseti Íslands geti hvatt Alþingi til þess að koma saman og funda ef ósk um það berst frá forsætisráðherra eða meirihluta Alþingismanna.

„Um leið og í ljós kom að brotalamir höfðu verið á söluferlinu fórum við fram á að sérstök rannsóknarnefnd yrði skipuð. Skýrsla Ríkisendurskoðunar og ákvörðun Fjármálaeftirlitsins staðfestir að sú leið hefði átt að vera farin strax í upphafi. Það blasir við að þáttur fjármálaráðherra sem undirritar samninga fyrir hönd ríkisins um sölu eignarhluta þess í fjármálafyrirtækjum og annarra ábyrgðaraðila hefur ekki verið rannsakaður til hlítar,“ er haft eftir Hönnu Katrínu Friðriksson, þingflokksformanni Viðreisnar, í tilkynningunni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK