Telja svigrúmið lítið eða ekkert

Meirihluti almennings telur lítið eða ekkert svigrúm vera til launahækkana …
Meirihluti almennings telur lítið eða ekkert svigrúm vera til launahækkana hjá sínum vinnuveitanda. mbl.is/Eyþór

Meirihluti almennings telur lítið eða ekkert svigrúm vera til launahækkana hjá sínum vinnuveitanda.

Þá telur yfirgnæfandi meirihluti aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins (SA), eða yfir 80 prósent, lítið eða ekkert svigrúm vera til launahækkana. Þetta kemur fram í könnun sem framkvæmd var af Gallup fyrir SA en niðurstöðurnar voru birtar á dögunum. Þá kemur fram að mikil samstaða sé milli almennings og atvinnulífs um hvað eigi að leggja áherslu á í komandi kjarasamningum.

Yfirgnæfandi meirihluti aðildarfyrirtækja SA og almennings nefndi samninga sem stuðli að lækkun vaxta og verðbólgu og samninga sem varðveiti kaupmátt og tryggi störf.

Í greiningu Arion banka kemur fram að verði kjarasamningsbundnar hækkanir 4% á næsta ári og árið 2025, líkt og miðgildi vilja almennings gefur til kynna, myndi það hafa þau áhrif að verðbólgan á tímabilinu yrði 3,4% samanborið við 5,4% í hagspá bankans.

Lestu meira um málið í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK