Frídögum launþega fjölgar um tvo

Frídagar launþega verða tveimur fleiri í ár en í fyrra.
Frídagar launþega verða tveimur fleiri í ár en í fyrra. mbl.is/Árni Sæberg

Frídagar um jól og áramót geta fæstir orðið einn og flestir fjórir. Nýliðin jól voru svonefnd brandajól, þar sem jóladag ber upp á mánudag.

Árið í ár er þó hlaupár þannig að hann ber næst upp á miðvikudag og annan í jólum á fimmtudag.

Alls eru tólf rauðir dagar á árinu, en þeim fjölgar um tvo á milli ára. Einn þeirra, nýársdagur, er þó liðinn.

Aðrir rauðir dagar eru nokkuð hefðbundnir, svo sem um páska, hvítasunnu og um verslunarmannahelgi. Þá ber 17. júní upp á mánudag í ár, en hann var á laugardegi á nýliðnu ári.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK