Herdís Dröfn Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Sýnar og mun hún hefja störf í næstu viku. Hún er fyrrverandi forstjóri Valitor og framkvæmdastjóri Framtakasjóðs Íslands.
Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að Herdís hafi verið ráðin að loknu ráðningarferli og muni hefja störf 11. janúar. Auk starfa sinna hjá Valitor og Framtakasjóði hefur Herdís setið í stjórn fjölda bæði skráðra og óskráðra fyrirtækja hérlendis og erlendis. Má þar meðal annars nefna Arion banka, Icelandair Group, Icelandic Group og Promens. Þá er Herdís stjórnarformaður Eyris Venture Management.
Herdís er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og er með meistaragráðu í fjármálum frá sama skóla.
Í tilkynningunni er haft eftir Herdísi að hún sé þakklát fyrir það traust sem henni sé sýnt og full eftirvæntingar að taka við keflinu hjá Sýn. „Ég hlakka til að kynnast starfseminni, starfsfólkinu og viðskiptavinum félagsins. Sýn samanstendur af spennandi rekstrareiningum í fjarskiptum, fjölmiðlum og í upplýsingatækni, og það verður spennandi að taka þátt í því með stjórn og starfsmönnum að efla þær einingar enn frekar og hámarka virði þeirra.“
„Herdís hefur sýnt að hún er framúrskarandi stjórnandi sem hefur jákvæð áhrif á rekstur og afkomu þeirra félaga sem hún lætur sig varða. Við erum að fá einstaklega öfluga manneskju í starfið og hlökkum til samstarfsins. Á þessum tímamótum viljum við jafnframt þakka Páli Ásgrímssyni – sem gegnt hefur starfi forstjóra tímabundið - sérstaklega fyrir sitt framlag en hann hverfur nú aftur til starfa sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Sýnar,“ er haft eftir Jóni Skaftasyni, stjórnarformanni félagsins í tilkynningunni.
Nokkrar breytingar voru gerðar í nóvember á rekstri Sýnar, sem meðal annars rekur Bylgjuna, Stöð 2, Vísi og Vodafone á Ísland. Þannig var sett á laggirnar ný sjálfstæð rekstrareining innan félagsins sem nefnist Vefmiðlar og útvarp. Innan nýju rekstrareiningarinnar eru allar fjölmiðlaeiningar Sýnar utan Stöðvar 2.
Nýlega gekk Sýn einnig frá kaupum á Já.is og þá falla Já.is, Bland.is, Tal og tengd vörumerki undir vefmiðla og útvarp.
Stöð 2 varð að sjálfstæðri rekstrareiningu með áherslu á áskriftartekjur og innlenda dagskrárgerð. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar starfar þvert á þessar einingar.
Stuttu áður, eða í október, hafði stjórn Sýnar komist að samkomulagi við þáverandi forstjóra, Yngva Halldórsson, um starfslok hans. Hann hafði þá starfað sem forstjóri í rúmlega ár, en hann tók við af Heiðari Guðjónssyni, sem hafði verið einn stærsti eigandi og forstjóri félagsins um nokkurt skeið. Við starfslok Yngva tók Páll Ásgrímsson við sem tímabundinn forstjóri og hefur hann sem fyrr segir nú aftur horfið til starfa sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs.
Í tilkynningu til Kauphallarinnar um miðjan desember kom svo fram að stjórn félagsins hefði ákveðið að taka framtíðar eignarhald og stefnu vefmiðla og útvarps til frekari skoðunar. Var sú ákvörðun grundvölluð á greiningu Kviku banka sem vann að greiningu á rekstri og virði vefmiðla og útvarps, en það eru þeir miðlar sem settir höfðu verið í sérstaka rekstrareiningu stuttu áður.