Samtals 11 starfsmönnum var í dag sagt upp hjá Arion banka vegna skipulagsbreytinga, en bankinn er að fækka stjórnendalögum bankans og mun forstöðumönnum með þessu fækka um 13%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum til Kauphallarinnar í dag.
Í síðustu viku var greint frá því að Steinunn Hlíf Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri upplifunar viðskiptavina, hefði komist að samkomulagi um starfslok, en hún tók sæti í framkvæmdastjórn árið 2021.
Í tilkynningu bankans segir nú að komið sé að ákveðnum kaflaskilum í starfsemi bankans sem kallar á breytt skipulag og aukna samlegð. „Markmið breytinganna er að sameina sérþekkingu og reynslu í ríkari mæli en áður, stytta boðleiðir og auka enn við hraða í þróun þjónustunnar. Öll fyrirtækjaþjónusta mun heyra undir fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið, en áður sinnti viðskiptabankasvið þjónustu við lítil og meðalstór fyrirtæki á landsbyggðinni. Gagnamál munu alfarið heyra undir upplýsingatæknisvið og markaðsmál undir bankastjóra þar sem fyrir er samskiptasvið bankans. Einnig færast sérfræðingar í upplifun viðskiptavina og þjónustuleiðum inn í viðskiptaeiningar og þar með nær viðskiptavinum.“
Hluti af þessu er sem fyrr segir að breyta innra skipulagi sviða bankans með það að markmiði að auka skilvirkni, samræma og einfalda stjórnskipulag og fækka stjórnendalögum. „Við þessar breytingar fækkar forstöðumönnum bankans um 13%, en alls munu 11 starfsmenn hætta störfum hjá Arion banka í dag,“ segir í tilkynningunni.
„Markviss vinna síðustu ára hefur skilað okkur skýrri sýn sem mun gegna lykilhlutverki í þróun þjónustu Arion banka og dótturfélaga, viðskiptavinum til góða. Þjónustusvið bankans taka nú við mikilvægum verkefnum sem öll miða að því að efla okkar þjónustu. Markmið skipulagsbreytinganna er jafnframt að auka slagkraft og skilvirkni í allri okkar starfsemi með enn öflugri einingum, þéttu samstarfi og einföldun skipulags,“ er haft eftir Benedikt Gíslasyni, bankastjóra Arion banka, í tilkynningunni.