Origo og KPMG vinna nú að þróun lausnar sem myndi greina kolefnisspor í innkaupum fyrirtækja. Mun lausnin hljóta nafnið GreenSenze.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækjunum.
Segir í tilkynningunni að GreenSenze verði mjög einfalt í notkun en fyrirtækjum hefur reynst erfitt að greina kolefnisspor í innkaupum sínum.
„Markmiðið hjá okkur er að smíða lausn sem einfaldar fyrirtækjum að greina innkaupin sín og meta birgja. Við viljum ekki að kolefnisspor innkaupa komi bara inn í uppgjör einu sinni á ári, heldur geta notendur fylgst með þróuninni yfir árið og beitt sér í átt að sínum markmiðum,” er haft eftir Hafþóri Ægi Sigurjónssyni, forstöðumanni sjálfbærni hjá KPMG.
Markviss greining á kolefnisspori er forsenda þess að fyrirtæki geti mótað aðgerðir sem draga úr kolefnislosun og stuðla að sjálfbærni í rekstri, að er kemur fram í tilkynningunni.
Segir í tilkynningunni að lausnin muni notfæra sér gögn úr rafrænum reikningum og auðga þau með ýmsum gagnalindum. Upplýsingarnar eru svo birtar með skýrum hætti í mælaborði þar sem hægt er að skoða ítarleg gögn um það sem hægt er að bæta í sjálfbærni fyrirtækja.
„Við erum mjög spennt fyrir samstarfinu við KPMG og finnum fyrir þeim sameiginlega áhuga okkar að búa til vöru sem virkilega hjálpar fyrirtækjum að stíga framfaraskref í sjálfbærnimálum. GreenSenze mun þannig aðstoða fyrirtæki við að átta sig á því hvaða vörur hafa of hátt kolefnisspor fyrir þeirra sjálfbærnimarkmið og ætti að forðast í innkaupum,“ er haft eftir Kristínu Hrefnu Halldórsdóttur forstöðumanni gæða- og innkaupalausna Origo.