Röraverksmiðjan Set ehf. á Selfossi er til sölu. Fyrirtækið sem á sér langa sögu hefur um langt skeið verið eitt um framleiðslu á einangruðum rörum og plaströrum hér á landi. Öll framleiðsla fer fram í verksmiðjum Sets á Selfossi og í Þýskalandi en félagið starfrækir einnig vöruhús í Reykjavík og söluskrifstofu í Danmörku.
Set er fyrirtæki sem hefur verið í fjölskyldueign frá fyrstu tíð.
„Með nýju eignarhaldi er lagður grunur að því að nýta tækifæri til vaxtar. Uppbygging innviða er eitt meginverkefna sem Ísland stendur frammi fyrir. Við höfum verið minnt á slíkt á síðustu vikum. Í uppbyggingu á næstunni hefur Set stórt hlutverk, enda mikil þekking og reynsla til staðar meðal starfsmanna,“ segir Bergsteinn Einarsson framkvæmdastjóri Sets.
Lestu meira um málið í ViðskiptaMogganum í dag.