Lögmennirnir Einar Oddur Sigurðsson og Unnsteinn Örn Elvarsson, sem rekið hafa lögmannsstofu um árabil, hafa bæst í hóp eigenda lögmannsstofunnar Lögmáls.
Unnsteinn er með BA-próf og meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og LL.M.-próf frá Háskólanum í Stokkhólmi. Unnsteinn er með réttindi til að reka mál fyrir Hæstarétti. Einar Oddur er með BA-próf og meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og réttindi til að reka mál fyrir héraðsdómstólum.
Lögmannsstofan Lögmál var stofnuð í ársbyrjun 1987 en þar starfa nú átta manns.