Landsbankinn hefur tilkynnt að hann muni lækka vexti á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum með fasta vexti.
Fastir vextir til þriggja ára á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum lækka um 0,3 prósentustig og sama gildir um fasta vexti til fimm ára á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum. Tekur ákvörðunin gildi á morgun.
„Vaxtabreytingar bankans taka mið af stýrivöxtum Seðlabanka Íslands en einnig af vöxtum á markaði og öðrum fjármögnunarkjörum bankans,“ segir í tilkynningu á vef bankans.
Næsta vaxtaákvörðun Seðlabankans verður á miðvikudaginn 20. mars.