Í dag undirrituðu SKEL og Samkaup viljayfirlýsingu vegna samruna Samkaupa Heimkaupa og Orkunnar. Með þessu hefja félögin formlegt samrunaferli. Verði af fyrirhugðum samruna er gert ráð fyrir að Samkaup verði yfirtökufélagið. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar og í tilkynningu Samkaupa til fjölmiðla.
Samkaup reka í dag rúmlega 60 verslanir víða um landið undir vörumerkjum Nettó, Kjörbúðarinnar, Krambúðarinnar og Iceland. Orkan starfrækir 72 orkustöðvar, 10 þvottastöðvar undir merkjum Löðurs, 6 hraðhleðslustöðvar, 2 vetnisstöðvar og 1 metanstöð. Þá á félagið 32 fasteignir og lóðir víðs vegar um landið, auk annarra eigna. Heimkaup reka 7 apótek undir merkjum Lyfjavals, netverslunina Heimkaup og 9 verslanir undir merkjum 10-11, Extra og Orkunnar.
Viljayfirlýsingin er háð fyrirvörum, svo sem um niðurstöðu áreiðanleikakannanna, frekari samninga- og skjalagerð, samþykki eftirlitsaðila og samþykki hluthafafundar félaganna.
Skiptihlutföll í fyrirhuguðum samruna eru ætluð 58,1:41,9, þannig að hluthafar samrunafélaganna fá afhenta 281.256.454 hluti í Samkaupum og Samkaup fær á móti alla hluti framangreindum félögum.
Fjöldi útistandandi hluta í Samkaup eftir samruna er þá áætlaður 671.256.454 kr. að nafnverði. Framangreind skiptihlutföll verða leiðrétt út frá stöðu handbærs fjár, vaxtaberandi skulda og nettó stöðu veltufjármuna (veltufjármunir/veltufjárskuldir) miðað við viðmiðunardag.
Ætlaður hlutur SKEL í hinu sameinaða félagi verður 42,7% en fyrir átti SKEL 5% hlut í Samkaup í gegnum Eignarhaldsfélagið Bjarma ehf.
Stefnt er að undirritun skuldbindandi samrunasamnings að loknum áreiðanleikakönnunum og viðmiðmunardagur samruna sé við lok þriðja ársfjórðungs. SKEL mun greina frekar frá framvindu eftir því sem tilefni er til.
Í tilkynningunni kemur fram að aðilar réðu Deloitte ehf. og Fossa fjárfestingarbanka hf. til þess að leggja mat á möguleg samlegðaráhrif fyrirhugaðs samruna, sem félögin gerðu á grundvelli afhentra gagna í lokuðu gagnaherbergi (e. clean room).
Niðurstaðan er að samlegðaráhrif fyrirhugaðs samruna geti numið á bilinu 1.400 til 1.700 milljónum króna á og myndu raungerast á öðru ári eftir sameiningu. Virði samlegðar er áætlað um 10,5 til 14 milljarðar króna.