Sonur Ólafíu Þórunnar og Thom­asar skírður

Ólafía Þórunn Kristinsdóttur deildi myndum af fjölskyldunni þegar yngsti sonurinn …
Ólafía Þórunn Kristinsdóttur deildi myndum af fjölskyldunni þegar yngsti sonurinn fékk nafnið sitt. Skjáskot/Instagram

Fyrr­ver­andi at­vinnukylf­ing­ur­inn Ólafía Þór­unn Krist­ins­dótt­ir og eig­inmaður henn­ar Thom­as Bojanowski létu skíra son sinn í heimahúsi. Sonurinn fékk nafnið Alexander Noel Thomasson. 

Alexander Noel fæddist þann 8. febrúar síðastliðinn en hann er annað barn hjónanna. Fyr­ir eiga þau son á þriðja ári en hann heitir Maron Atlas.

Blátt þema var í skírnarveislunni en Ólafía Þórunn var í bláum kjól í stíl við slaufuna á skírnarkjól Alexanders Noels. Blár blöðrubogi var einnig í veislunni sem gerði alla umgjörð einstaklega fallega. Blái liturinn var einnig áberandi á veisluborðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert