Fjórir fundust látnir í bænum Ål í Noregi

Ekki er vitað hvað orsakaði andlát fólksins. Mynd úr safni.
Ekki er vitað hvað orsakaði andlát fólksins. Mynd úr safni. AFP/Stian Lysber Solum

Fjórir einstaklingar fundust látnir á heimili í Ål í Hallingdal í Noregi í kvöld. Norska ríkisútvarpið greinir frá.

Fjölskyldumeðlimur óskaði eftir aðstoð lögreglu sem úrskurðaði fólkið látið á vettvangi, að sögn lögreglustjórans Brit Fyksen.

Ekki er vitað hvað orsakaði andlát fólksins, né hvort að fleiri tengist atvikinu. Lögreglan mun rannsaka málið fram á nótt.

Fréttatilkynning vegna málsins verður gefin út á morgun, að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert