Ekkert mál rekið fyrir dómstólum

Málið var upphaflega höfðað gegn Félagi eldri borgara vegna kaupsamnings …
Málið var upphaflega höfðað gegn Félagi eldri borgara vegna kaupsamnings þar sem umsamið kaupverð stóðst ekki þegar kom að afhendingu íbúða í nýbyggingu félagsins við Árskóga. mbl.is/Árni Sæberg

Fullar sættir hafa náðst í innsetningarmáli sem höfðað var gegn Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni af kaupendum einnar íbúðar við Árskóga. Fjalla átti um frávísunarkröfu félagsins fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku.

Fram kemur í tilkynningu frá Félagi eldri borgara að stjórn félagsins afturkallaði í dag nýtingu ætlaðs kaupréttar félagsins á íbúðinni sem málið snerist um. Þá samþykktu kaupendur íbúðarinnar að draga málshöfðun sína til baka og ganga að því samkomulagi sem félagið hafði áður boðið þeim sem höfðuðu mál gegn félaginu. Í því felst að þeir hafa einnig skrifað undir skilmálabreytingu um hærra kostnaðarverð, rétt eins og langflestir aðrir kaupendur hafa þegar gert. Ekkert mál er því lengur rekið fyrir dómstólum.

Málið var upphaflega höfðað gegn Félagi eldri borgara vegna kaupsamnings þar sem umsamið kaupverð stóðst ekki þegar kom að afhendingu íbúða í nýbyggingu félagsins við Árskóga.

„Ávallt hafði staðið til að afhenda félagsmönnum íbúðirnar á kostnaðarverði en vanáætlaður fjármagnskostnaður og mistök sem gerð voru við kaupsamningsgerðina ollu því að félagið þurfti að óska eftir viðbótargreiðslu til að geta lokið framkvæmdum. Í kjölfar þess að málið kom upp náði félagið samkomulagi um niðurfellingu á hluta kostnaðarins og því fá kaupendur íbúða í Árskógum þær á verði sem er undir raunverulegum kostnaði við byggingu þeirra,“ segir í tilkynningu.

Stjórn Félags eldri borgara vill enn fremur ítreka afsökunarbeiðni félagsins til þeirra sem orðið hafa fyrir áhrifum af mistökunum. Þá þakkar félagið kaupendum fyrir þann skilning sem þeir hafa sýnt félaginu í þröngri stöðu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert