Fimm ný verndarsvæði í byggð

Meðal þeirra svæða sem nú eru verndarsvæði er gamli bærinn …
Meðal þeirra svæða sem nú eru verndarsvæði er gamli bærinn á Sauðárkróki, en hér sést meðal annars yfir hluta hans. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur staðfest tillögur að fimm nýjum verndarsvæðum í byggð. Tilgangur slíkra svæða er að stuðla að verndun byggðar vegna svipmóts, menningarsögu eða listræns gildis þeirra.

Svæðin sem um ræðir nú eru framdalurinn í Skorradal, gamli bæjarhlutinn á Sauðárkróki, vesturhluti Víkur í Mýrdal, Þórkötlustaðahverfi í Grindavík og bæjarhlutarnir Plássið og Sandurinn á Hofsósi í Skagafirði. 

Tillögur um verndarsvæði koma frá viðkomandi sveitarfélagi en Minjastofnun Íslands veitir sveitarfélögum ráðgjöf við undirbúning tillagna og skilar einnig umsögn sinni til ráðherra, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. 

Um nýju verndarsvæðin:

Vesturhluti Víkur í Mýrdal: Svæðið nær frá Víkurbraut 16 í austri og tekur til húsa norðan Víkurbrautar til og með bátaskýlisins við Víkurbraut 40a, auk húsa númer 21 (Halldórsbúð), 21a, 17 (Skaftfellingabúð), 19, 11 og 11a, sem eru sunnan Víkurbrautar. Innan þessarar afmörkunar eru verslunar- og íbúðarhús frá upphafi fjölbýlismyndunar í Vík og fram til ársins 1918, auk nokkurra yngri bygginga.

Gamli bærinn á Sauðárkróki: Svæðið afmarkast að norðan af nyrsta íbúðarhúsi Sauðárkróks, að austan af Strandvegi, að sunnan af Kirkjutorgi og Kirkjuklauf (Hlíðarstíg) og að vestan af Nöfum.

Plássið og Sandurinn á Hofsósi: Svæðið er um 3 hektarar að stærð og afmarkast af Brekkunni að norðan, af brekkubrún Bakkans að austan og sjó og hafnargarði að sunnan og vestan.

Framdalur Skorradals: Svæðið afmarkast við heimatún bæjanna Háafells, Fitja, Sarps, Efstabæjar, Bakkakots og Vatnshorns. Einnig nær verndin til gömlu þjóðleiðanna sem liggja um lönd fyrrgreindra bæja. Um er að ræða fornar þingleiðir, biskupa- og prestaleiðir m.a. tengdar Fitjakirkju og Þingvöllum, gamlar verleiðir milli landshluta og leiðir til aðdrátta sem lengst af lágu til Hvalfjarðar.

Þórkötlustaðahverfi í Grindavík: Svæðið afmarkast af Austurvegi til norðurs og af túnmörkum og hlöðnum túngörðum við Slokahraun til austurs. Strandlengja Þórkötlustaðabótar afmarkar svæðið til suðurs og vesturmörkin eru við Kóngahraun við Þórkötlustaðanes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert