Ísland gerði tíu ára samning við Bretland

Guðlaugur Þór við undirritunina í dag.
Guðlaugur Þór við undirritunina í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ísland og Bretland hafa gert með sér samkomulag um samstarf ríkjanna til næstu tíu ára.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Wendy Morton, ráðherra Bretlands fyrir málefni Evrópu- og Ameríku, undirrituðu samstarfsyfirlýsingu þess efnis í dag.

Yfirlýsingunni er ætlað að efla tvíhliða samskipti ríkjanna með sameiginlegum framtaksverkefnum. Fundurinn fór fram í gegnum fjarfundabúnað vegna kórónuveirunnar, að því er segir í tilkynningu.

Vitnisburður um náin tengsl þjóðanna

„Um þessar mundir fagna Ísland og Bretland 80 ára afmæli stjórnmálasambands sín á milli. Í dag undirritaði ég sameiginlega yfirlýsingu með Bretlandi sem markar þáttaskil í samskiptum ríkjanna. Yfirlýsingin um sameiginlega sýn fyrir 2030 er vitnisburður um náin tengsl Íslands og Bretlands og áherslu beggja ríkja á að efla enn frekar samvinnu og samstarf á margvíslegum grunni,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningunni.

Í tilefni undirritunarinnar ræddu ráðherrarnir þau mikilvægu og sögulegu tengsl sem eru á milli ríkjanna á sviði efnahagsmála, fjárfestinga og viðskipta og möguleg tækifæri sem fælust í nýjum yfirgripsmiklum fríverslunarsamningi á þeim sviðum.

Ráðherrarnir fögnuðu því að í síðustu viku var fyrsti fundur aðalsamningamanna um framtíðarsamband ríkjanna og voru sammála um að mikilvægt væri að hefja samningaviðræður um fríverslunarsamning sem fyrst með það að markmiði að hann taki gildi við lok árs.

Á grundvelli yfirlýsingarinnar setja Ísland og Bretland sér það markmið að efla tvíhliða og svæðisbundna samvinnu á komandi áratug og beita í þeim tilgangi reglubundnu samráði til að meta árangur, með megináherslu á eftirtalin sjö svið:

Viðskipti og fjárfestingar

Sjávarútveg

Rannsóknir og nýsköpun

Svæðisbundna og alþjóðlega samvinnu

Varnar- og öryggismál

Loftslagsbreytingar og norðurslóðir

Tengsl þjóðanna

Sendiherra Íslands gagnvart Bretlandi og sendiherra Bretlands gagnvart Íslandi er falið það hlutverk að leiða verkefnið til að tryggja að markmiðum sé náð, árangur sé metinn og samstarfið leiði í raun til þess ávinnings sem stefnt er að.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert