Fyrstu covid-sjúklingarnir í mánuð

Rúmensk kona leidd inn í farsóttarhúsið við Rauðarárstíg eftir skoðun …
Rúmensk kona leidd inn í farsóttarhúsið við Rauðarárstíg eftir skoðun á göngudeild Landspítalans. mbl.is/Sigurður Ragnarsson

Göngudeild Landspítala í Birkiborg, sem var undirlögð meðferð covid-sjúklinga á meðan faraldurinn reið yfir, hefur legið í láginni síðasta mánuð en var ræst aftur í dag.

Það var í fyrsta sinn í dag sem smitaðir einstaklingar fóru inn í húsakynni sjúkrahússins síðan síðasta covid-sjúklingnum batnaði 13. maí. Það voru rúmenskur karl og kona sama þjóðernis, sem staðin voru að þjófnaði á Selfossi fyrir helgi. Við handtökuna kom á daginn að þau áttu að vera í sóttkví og voru þá tekin sýni úr fólkinu, sem reyndust jákvæð.

Þau komu til skoðunar á deildinni í dag og til þess var kallað út heilbrigðisstarfsfólk sem hefur séð um rekstur deildarinnar í faraldrinum. Ekki var talin ástæða til að vista fólkið á sjúkrahúsi, heldur var það sent áfram til dvalar í farsóttarhúsinu við Rauðarárstíg. Þar verður áfram fylgst með líðan þeirra og þau kölluð inn á sjúkrahús ef þurfa þykir.

Tekið forskot á nýtt fyrirkomulag

Með ræsingu göngudeildarinnar í dag var tekið forskot á það fyrirkomulag sem tekur við á Landspítalanum nú á morgun með nýju fyrirkomulagi landamæraeftirlits, segir Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra Landspítalans.

Anna segir að héðan í frá verði einstaklingar sem greinast með COVID-19 kallaðir inn á göngudeildina, hvort sem þeir eru erlendir eða íslenskir. Þetta er ólíkt því sem verið hefur, að látið sé duga að eiga samskipti við hina smituðu í síma og tryggja þar með að innlagnar sé ekki þörf. Markmiðið með að fá fólk inn á deild sé að tryggja góð samskipti og miðla fræðslu um sjúkdóminn. Símtalsaðferðin kann að vera ófullnægjandi þegar um erlenda aðila er að ræða.

Göngudeild Landspítalans í Birkiborg var aftur ræst í dag. Þar …
Göngudeild Landspítalans í Birkiborg var aftur ræst í dag. Þar verður tekið við þeim einstaklingum sem greinast með COVID-19 á Íslandi á næstu vikum. mbl.is/Íris

12 manna hópur til rannsóknar

Áður en Rúmenarnir komu við á göngudeildinni höfðu þeir verið í haldi lögreglu á Selfossi vegna búðarþjófnaðar og brota á sóttvarnalögum. Í tengsl­um við sama mál eru fjór­ir aðrir rúm­ensk­ir ein­stak­ling­ar í haldi lög­reglu og einn þeirra hafði verið í slag­togi við hina smituðu þegar þeir voru hand­tekn­ir fyr­ir þjófnaðinn. Sex annarra er leitað sem komu til lands­ins fyr­ir meira en viku, en sá hóp­ur er tal­inn hafa tengsl við þau sem þegar eru í haldi.

Lögreglan talar um að þetta fólk tengist skipulagðri glæpastarfsemi hópa sem koma til landsins gagngert til þess að stunda glæpi á borð við innbrot og þjófnað. Kórónuveirusmit hafa gefið málinu nýja vídd, þar sem fólks er ekki aðeins leitað fyrir nefnda glæpi, heldur einnig af sóttvarnasjónarmiðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert