Ábendingar í stað takmarkana á hjúkrunarheimilum

Frá tónleikum karlasönghópsins Fósturvísanna fyrir heimilisfólk Hrafnistu í fyrravor þegar …
Frá tónleikum karlasönghópsins Fósturvísanna fyrir heimilisfólk Hrafnistu í fyrravor þegar kórónuveirufaraldurinn stóð sem hæst. Ekki er búist við að herða þurfi takmarkanir á dvalar- og hjúkrunarheimilum þó fjöldi smita hafi greinst síðustu daga. mbl.is

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hvatti hjúkrunarheimili og sjúkrastofnanir á upplýsingafundi Almannavarna í dag til að skerpa á umgengnisreglum vegna fjölgunar kórónuveirusmita síðustu daga. 

„Við erum búin að því,“ segir Gísli Páll Páls­son, for­stjóri Grund­ar­heim­il­anna og formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, SFV, í samtali við mbl.is. 

Búið var að aflétta öllum heimsóknartakmörkunum. Ekki verður gripið til ákveðinna takmarkana á heimilunum nú, heldur er frekar um að ræða vinsamlegar ábendingar að sögn Gísla. Aðstandendum og starfsfólki hefur verið tilkynnt í hverju þær felast.  

„Það eru þessar persónulegu sóttvarnir, ekki koma í heimsókn ef grunur leikur á smiti og ekki koma ef þú ert nýkominn frá útlöndum,“ segir Gísli. 

Þá er mælst til þess að börn komi ekki í heimsókn sem stendur, en það er ekki bannað. 

„Þetta eru í raun ábendingar og óskir um að fólk hagi sér skynsamlega,“ segir Gísli. Hann veit ekki til þess að önnur dvalar- eða hjúkrunarheimili ætli að grípa til hertari aðgerða en fylgst verður áfram grannt með þróun faraldursins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert