Viðtöl við umsækjendur í næstu viku

Umsækjendur mæta í viðtöl í næstu viku.
Umsækjendur mæta í viðtöl í næstu viku. mbl.is/Jón Pétur

Gert er ráð fyrir að viðtöl við umsækjendur um embætti forstjóra Landspítalans hefjist í næstu viku. Þetta staðfestir Milla Ósk Magnús­dótt­ir, aðstoðarmaður heil­brigðisráðherra, í skrif­legu svari til mbl.is.

Um­sókn­ar­frest­ur um embætti for­stjóra Land­spít­ala rann út 8. nóvember. Alls sóttu fjór­tán um stöðuna.

Heil­brigðisráðherra skip­ar í embættið til fimm ára frá 1. mars næst­kom­andi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert