Fá styrk til að draga úr rangri lyfjanotkun

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Reykjanesapóteki þriggja milljóna króna styrk …
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Reykjanesapóteki þriggja milljóna króna styrk til að ráðast í tilraunaverkefni sem miðar að því að auka öryggi lyfjameðferðar og bæta meðferðarheldni sjúklinga mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Reykjanesapótek mun fá þriggja milljóna króna styrk frá heilbrigðisráðuneytinu í tilraunaverkefni að norskri fyrirmynd sem á m.a. að draga úr rangri lyfjanotkun og bæta lyfjaöryggi hjá þeim sem nota mörg lyf eða áhættusöm. 

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin áætlar að um 15% sjúkrahúsinnlagna ár hvert sé vegna lyfjatengdra atvika. Þá er áætlað að árlegur kostnaður af rangri lyfjanotkun nemi um 74 milljörðum króna í Noregi en ef þessi nálgun er yfirfærð á Ísland nemur sambærilegur kostnaður um 5 milljörðum króna árlega.

Verkefnið verður afmarkað við þá sem taka lyf við hjarta- og æðasjúkdómum á borð við blóðþynningarlyf, blóðþrýstings- og blóðfitulækkandi lyf og felst í skilgreindri umsjón lyfjafræðings.

Þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins.

Verða boðið viðtal

Auk styrkveitingarinnar mun heilbrigðisráðuneytið einnig óska eftir því að Embætti landlæknis tryggi aðgengi apóteksins að lyfjagagnagrunni embættisins á meðan verkefninu stendur. Þá verður jafnframt kannaður möguleiki á miðlægri skráningu upplýsinga.

Rannsóknir benda til að mest þörf á leiðsögn og upplýsingagjöf sé á fyrstu vikum lyfjameðferðar, á fyrstu dögunum til að stuðla að meðferðarheldni og um mánuði eftir að meðferð hófst til að veita sjúklingi upplýsingar ef fram hafa komið einhver vandamál tengd lyfjagjöfinni sem þarf að ræða.

Tilraunaverkefni Reykjanesapóteks miðast við að bjóða sjúklingum sem eru að hefja lyfjameðferð þátttöku í verkefninu. Viðkomandi verður boðið viðtal við lyfjafræðing apóteksins einni til tveimur vikum eftir meðferð og svo annað viðtal þremur til fimm vikum síðar. Samstarf verður við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem á þess kost að vísa sjúklingum á þessa þjónustu,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert