Skotfélagið tilkynnti manninn í nóvember

Lögreglumenn á vettvangi í gær.
Lögreglumenn á vettvangi í gær. mbl.is/Hákon

Stjórn Skotfélagsins Markviss á Blönduósi hafði áhyggjur af andlegri heilsu skotárásarmannsins sem skaut á hjón á sextugsaldri á heimili þeirra á Blönduósi í gær, með þeim afleiðingum að annað þeirra lést, og hafði tilkynnt hann til yfirvalda.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu á heimasíðu Markviss.

Maðurinn keppti fyrir hönd félagsins á árum áður og gegndi trúnaðarstörfum fyrir félagið. Fram kemur í yfirlýsingunni að undanfarin ár hafi farið að halla undan fæti hjá manninum og hann dregið sig mikið til hlés í starfi félagsins. Á síðasta ári hafi hann svo sagt sig frá öllum störfum í þágu Markviss og loks úr félaginu.

„Í ljósi samskipta milli umrædds aðila og stjórnar Markviss í nóvember síðastliðnum voru yfirvöld látin vita af áhyggjum okkar af andlegri heilsu viðkomandi eins og okkur ber skylda til,“ segir í yfirlýsingunni.

Handtekinn vegna hótana með skotvopni

„Það er von okkar í stjórn Markviss að þessi voðaverk verði ekki til að fólk líti starfsemi félagsins öðrum augum en verið hefur og við getum haldið áfram því jákvæða og góða starfi og uppbyggingu sem verið hefur hjá okkur undanfarin ár, því við viljum bara geta stundað okkar íþrótt í sátt og friði við sem flesta bæði guð og menn.“

Greint var frá því á mbl.is í gær, samkvæmt heimildum, að til hefði staðið að svipta manninn byssuleyfi, en hann var handtekinn fyrir þremur vikum eftir að hafa komið heim til hjónanna sem hann réðst á í gær, og hótað þeim með skotvopni. Maðurinn var vistaður á geðdeild í kjölfarið og öll skotvopn sem skráð voru á hann gerð upptæk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert