Hækka viðbúnaðarstig á landamærum vegna yfirálags

Frá Leifsstöð.
Frá Leifsstöð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Embætti ríkislögreglustjóra hefur nú hækkað viðbúnaðarstig á landamærum á hættustig vegna yfirálags til þess að tryggja örugga móttöku á þeim mikla fjölda fólks sem sækir um alþjóðlega vernd á Íslandi.

Embættið reiknar með að umsækjendum um alþjóðlega vernd muni fjölga hlutfallslega meira á síðustu mánuðum ársins en á sama tíma eru búsetuúrræði þegar nánast fullnýtt. Hækkun á viðbúnaðarstigi er liður í að bregðast við þessari stöðu, að því er fram kemur í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. 

„Síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst þann 24. febrúar hafa 1646 einstaklingar með tengsl við Úkraínu sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi. Alls hafa 2718 einstaklingar sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi það sem af er árinu en næst stærsti hópurinn er frá Venesúela eða 537 einstaklingar og þriðji fjölmennasti hópurinn telur 119 einstaklinga sem hafa tengsl við Palestínu. Þessi fjöldi umsókna um vernd er fordæmalaus en tölurnar eru birtar með fyrirvara um að fleiri umsóknir hafi borist á vinnslutíma þessarar tilkynningar. Samstillt átak viðbragðsaðila og opnun móttökumiðstöðvar í Domus, í kjölfar þess að hættustig á landamærum var lýst yfir þann 8. Mars 2022, skilaði því að vel tókst að bregðast við fjölgun á vinnslu umsókna. Þann 16.maí var viðbúnaðarstig svo fært niður á óvissustig. Mikið viðvarandi og aukið álag á þeim viðbragðsaðilum sem koma að móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd kallar nú á aukna aðstoð og styrkingu móttökukerfisins,“ segir í tilkynningunni. 

Búsetuúrræði til skamms tíma að verða fullnýtt

Þá kemur fram, að  samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum frá Vinnumálastofnun þá séu búsetuúrræði sem nýtt eru sem skammtímaúrræði að nálgast fulla nýtingu. Langtímaúrræði sem rekin eru af Fjölmenningarsetri og sveitarfélögum séu jafnframt nánast fullnýtt.

„Embætti ríkislögreglustjóra áætlar að umsækjendum um alþjóðlega vernd muni fjölga hlutfallslega síðustu fjóra mánuði ársins en á tímabilinu 1. til og með 15. september hafa samtals 175 einstaklingar sótt um vernd hér á landi. Með því að virkja viðbragðsáætlun vegna álags á landamærum aftur á hættustig verður lagður aukinn þungi í upplýsingaöflun, greiningu og jafnframt miðlun á upplýsingum til umsækjenda um alþjóðlega vernd, milli viðbragðsaðila og til almennings. Tryggt verður að hægt sé að kalla alla viðbragðsaðila að borðinu með skjótum hætti komi til þess að opna þurfi fjöldahjálparstöð ef öll önnur úrræði eru fullnýtt og tryggja þannig umsækjendum um alþjóðlega vernda tímabundið öruggt húsaskjól.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert