Ríkið annist innheimtu meðlaga

Innheimtustofnun sveitarfélaga hefur innheimt meðlög.
Innheimtustofnun sveitarfélaga hefur innheimt meðlög. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkisendurskoðun leggur til að ábyrgð á innheimtu meðlaga verði endurskilgreind og að innheimtumönnum ríkissjóðs verði falin ábyrgð á verkefninu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um úttekt á Innheimtustofnun sveitarfélaga.

Auk þess verði innheimtumönnum ríkissjóðs falið að meta þau verðmæti sem felast í kröfusafni stofnunarinnar. Ríkisendurskoðun telur rétt að kröfusafnið í heild flytjist til ríkisins með samkomulagi við eigendur Innheimtustofnunar. Endanlegt uppgjör vegna kröfusafnsins fari fram að tilteknum tíma liðnum.

Þá er lagt til að gerð verði sérstök greining á gagnagrunni núverandi innheimtukerfis, sem og þeim kerfum sem til staðar eru hjá innheimtumönnum ríkissjóðs. Það verði eftir atvikum gert í samstarfi við Tryggingastofnun ríkisins.

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í gær. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert