Fengið líflátshótanir eftir söng í flugvélinni

Jessica segir að stundin hafi verið falleg og að það …
Jessica segir að stundin hafi verið falleg og að það sé rétta sagan. Samsett mynd

Kanadísk söngkona, Jessica Pearson, sem söng fyrir farþega flugvélar sem sat föst á Keflavíkurflugvelli í lok janúar, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna líflátshótana sem henni hafa borist í kjölfarið.

Myndband af söngatriði Jessicu og hljómsveitar hennar í vél Icelandair fór um eins og eldur í sinu vestanhafs, þar á meðal á TikTok, þann 1. febrúar.

Einhverjir mislásu í myndbandið og héldu að Jessica og félagar hennar hefðu, upp á sitt eindæmi, byrjað að syngja í vélinni og haldið því til streitu í tíu klukkustundir, að því er fram kemur í yfirlýsingu Jessicu.

Hún vilji leiðrétta þann misskilning.

Flökkusagan olli hörðum viðbrögðum

„Þessi flökkusaga olli hörðum viðbrögðum og hatrið þróaðist út í líflátshótanir. Myndbandið var tekið niður í kjölfarið,“ segir í yfirlýsingu Jessicu. Birti hún það á TikTok og ritaði undir: 

„Við sátum föst í flugvélinni á Íslandi í tíu klukkustundir vegna 115 kílómetra vindhraða. Sem betur fer vorum við með hljóðfærin okkar um borð og ákváðum að hefja fjöldasöng.“ 

Eftir að farþegar höfðu beðið í kyrrstæðri vélinni í sex klukkustundir bað flugstjórinn Jessicu og félaga hennar að taka nokkur lög. Þær hafi gert það með glöðu geði og fengið lof fyrir. 

Fengu súkkulaði í þakklætisvott

„Ég er steinhissa og vonsvikin yfir því að gleðistund hafi breyst í illkvittna árás. Hatrið er óskiljanlegt. Mér var sagt að fyrirfara mér vegna þess að ég spilaði lög fyrir fólk um borð í flugvél. Það er sturlun,“ er haft eftir Jessicu í yfirlýsingunni.

Þar er tekið fram að hún sé atvinnutónlistarmaður og virt í tónlistarsamfélaginu, í Kanada og víðar.

Eftir að farþegar komust út úr vélinni var klappað fyrir Jessicu og félögum hennar, tekin myndbönd og þeim gefið súkkulaði í þakklætisvott.

„Þetta var falleg minning sem farþegar og áhafnarmeðlimir sköpuðu saman, vegna þess að tónlistin tengir okkur öll. Um það snýst sagan,“ segir í lok yfirlýsingarinnar.

Icelandair birti myndbandið á Facebook-síðu sinni daginn eftir atvikið og fékk jákvæð viðbrögð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert