98% þátttakenda í atkvæðagreiðslu VR um röð verkfallsaðgerða starfsmanna hjá Icelandair voru hlynntir verkfallsaðgerðum. Þetta herma heimildir mbl.is
Samningar náðust í kjaradeilu Samtaka atvinnulífsins og VR í fyrrinótt. Áður en samningar náðust hafði VR boðað til atkvæðagreiðslu um röð verkfallsaðgerða.
Verkfallsaðgerðirnar næðu til starfsmanna í innritun farþega og hlaðmanna hjá Icelandair. Atkvæðagreiðslan hófst á mánudag og átti að ljúka á fimmtudag.
Samkvæmt heimildum mbl.is var kosningaþátttaka í atkvæðagreiðslunni mjög mikil. 162 manns tóku þátt eða um 94%.
98% svarenda voru hlynntir verkfallsaðgerðum, einungis þrír einstaklingar kusu því gegn þeim.
Verkfall félagsmanna VR hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli átti að hefjast á miðnætti á föstudag 22. mars hefðu aðgerðirnar verið samþykktar.
Í ljósi þess að samningar náðust varð ekkert úr verkfallinu.