Hernaðarandstæðingar fordæma vopnakaupastuðning Íslands

Guttormur Þorsteinsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga.
Guttormur Þorsteinsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga. Mynd úr safni

Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla harðlega áformum íslenskra stjórnvalda um að styðja við vopnakaup Tékklands fyrir Úkraínu.

Þetta kemur fram í tilkynningu samtakanna. 

„Þá eru stjórnmálamenn líka farnir að leggja til að Íslendingar leggi til hermenn í mögulegan norrænan her. Nú síðast lýsa íslensk stjórnvöld því yfir að þau ætli að fjármagna kaup á vopnum og flutning þeirra til að auka enn á stríðshörmungar í Úkraínu. Þessa þróun og stefnubreytingu er brýnt að stöðva og það strax,“ segir í tilkynningu samtakanna.

Lítið fram­boð hef­ur verið af skot­fær­um og því byrjaði Tékk­land, í samstarfi við aðrar þjóðir, að útvega skotfæri fyrir stórskotalið Úkraínu. Ísland leggur 298 milljónir króna til verkefnisins og mun einnig hjálpa við kaup á búnaði fyr­ir kon­ur í úkraínska hern­um.

Segja mikilvægt að Ísland stofni aldrei her

Samtökin minna á að Ísland sé herlaus þjóð og segja mikilvægt að Íslendingar stofni aldrei her. Telja samtökin að án hers séu eru Íslendingar í kjöraðstöðu til að standa við stefnu um frið án hernaðar og að vera málsvarar friðsamlegra leiða til að leysa ágreining víða um heim.

„Lengst af á þeim 75 árum sem eru frá því að Alþingi samþykkti aðild Íslands að hernaðarbandalaginu NATO, tók Ísland ekki þátt í herráði NATO og lagði því hvorki til hermenn né drápstól.

Á seinni árum hafa vígfúsir stjórnmálamenn hins vegar bætt æ meir í þátttöku Íslands í vígbúnaði og hernaðarátökum. Gróft dæmi þess var þegar íslenskir ráðherrar settu Ísland á lista yfir þjóðir sem væru viljugar til að heyja stríð í Írak,“ segir í tilkynningunni. 

Eina lausnin vopnahlé

Ítreka samtökin að þau fordæmi innrás Rússlands í Úkraínu. 

„Hver dagur sem stríðið mun standa áfram, mun verða framhald á sömu hörmungum. Þúsundir ungra karlmanna hafa dáið og örkumlast í þessu stríði og nú er verið að sækja ungar konur til að falla í þessum vonlausu skotgröfum líka. Þessu galna stríði lýkur ekki með „sigri“ á vígvöllum, áframhaldandi stríð í Úkraínu mun bara versna.“

Samtök hernaðarandstæðinga segja að eina lausnin í þessu stríði sé að komið verði á tafarlausu vopnahléi og friðarviðræðum í kjölfarið. 

„Það er skylda okkar Íslendinga að standa föstum fótum sem herlaus þjóð og beita okkur fyrir friðsamlegri lausn á stríðinu í Úkraínu,“ segir að lokum í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert