Vara við El Niño og alvarlegri hlýnun fram undan

„Heimurinn ætti að búa sig undir myndun El Niño,“ segir …
„Heimurinn ætti að búa sig undir myndun El Niño,“ segir Taalas. AFP

Sífellt líklegra þykir að veðurfyrirbrigðið El Niño myndist á næstu mánuðum. Það hefði í för með sér hærra hitastig á heimsvísu og mögulega ný hitamet.

Sameinuðu þjóðirnar vara við þessu í dag.

Alþjóðaveðurfræðistofnun SÞ metur það nú sem svo að 60% líkur séu á að El Niño myndist fyrir lok júlí, og 80% líkur á að það verði fyrir septemberlok.

„Þetta mun breyta veðri og loftslagsmynstri á heimsvísu,“ sagði Wilfran Moufoma Okia, yfirmaður spádeildar stofnunarinnar, við blaðamenn í Genf í morgun.

Bóndi gengur um uppþornaðan hrísgrjónaakur á Filippseyjum í dag. Sameinuðu …
Bóndi gengur um uppþornaðan hrísgrjónaakur á Filippseyjum í dag. Sameinuðu þjóðirnar vara við yfirvofandi hlýnun. AFP

Andstæða El Niño hefur ríkt frá árinu 2020

El Niño er náttúrulegt veðurfyrirbrigði sem skilgreint er á vísindavef HÍ sem hér segir: Margra mánaða langt ástand með víðáttumiklum jákvæðum sjávarhitafrávikum í austanverðu Kyrrahafi.

Fyrirbrigðið er yfirleitt tengt við hækkandi hita á heimsvísu, ásamt þurrki á sumum svæðum og miklu regni annars staðar. Varð þess síðast vart á árunum 2018 og 2019.

Frá árinu 2020 hefur andstæða El Niño þó verið ríkjandi, La Niña nefnist hún, og það óvenju lengi. Hún vék frá fyrr á þessu ári, og síðan hefur verið ákveðið millibilsástand.

Síðustu átta ár eru þau heitustu sem nokkurn tíma hafa mælst, og það þrátt fyrir að kælingaráhrif La Niña hafi varað í nærri helming þess tíma. Án þess er talið að hlýnunin hefði verið mun meiri.

Petteri Taalas á blaðamannafundi í Genf.
Petteri Taalas á blaðamannafundi í Genf. AFP

Hamlaði frekari hlýnun

La Niña „virkaði sem tímabundinn hemill á hækkun hitastigs á heimsvísu,“ segir Petteri Taalas, yfirmaður Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar, í yfirlýsingu.

„Heimurinn ætti að búa sig undir myndun El Niño,“ bætir hann við.

Því muni mjög líklega fylgja nýr toppur í hnattrænni hlýnun og auka líkurnar á að hitamet verði slegin. 

Áhrifin líklega mest á næsta ári

Alls óvíst þykir hversu sterkt eða hversu lengi þetta fyrirbrigði verði að þessu sinni. Síðasta El Niño var talið mjög veikt en það sem kom á undan, á árunum 2014 til 2016, þykir eitt það sterkasta sem mælst hefur, með alvarlegum afleiðingum.

Stofnunin bendir á að árið 2016 hafi verið hlýjasta ár sögunnar, vegna sterks El Niño annars vegar og hins vegar sökum hlýnunar af mannavöldum vegna gróðurhúsalofttegunda.

Þar sem áhrifa El Niño á hitastig heimsins gætir helst árið eftir að það kemur fram, þykir líklegast að þau verði mest á næsta ári.

„Við búumst við að næstu tvö ár verði alvarleg hækkun á hitastigi á heimsvísu,“ segir Okia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert