Selenskí fagnar úrslitunum gegn Íslandi

Selenskí fagnaði sigri Úkraínu á miðlinum X.
Selenskí fagnaði sigri Úkraínu á miðlinum X. AFP/Ozan Kose

Volodimír Selenskí, for­seti Úkraínu, sendi leikmönnum úkraínska landsliðsins í fótbolta hjartnæmar kveðjur á miðlinum X eftir sigur liðsins á Íslandi fyrr í kvöld. 

Með sigrinum tryggði Úkraína sér sæti á Evrópumótinu í fótbolta sem haldið verður í Þýskalandi í sumar. 

Þakkar hann liðinu sérstaklega fyrir að sanna það enn og aftur að alltaf þegar Úkraínumenn lenda í erfiðileikum þá gefist þeir ekki upp heldur haldi áfram og þannig vinni Úkraína svo sannarlega.

„Á tímum þegar óvinurinn reynir að tortíma okkur sýnum við á hverjum degi að Úkraínumenn eru og verða.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert