Stoke losar sig við tvo reynslubolta

Leikmenn Stoke þakka stuðningsmönnum sínum fyrir stuðninginn.
Leikmenn Stoke þakka stuðningsmönnum sínum fyrir stuðninginn. AFP

Gary Rowett, nýráðinn knattspyrnustjóri Stoke City, er búinn að losa sig við tvo reynslubolta en Stoke féll úr ensku úrvalsdeildinni á nýafstöðu tímabili.

Stephen Ireland og Glen Johnson hefur verið tilkynnt að krafta þeirra sé ekki lengur óskað. Johnson, sem er 33 ára gamall og fyrrverandi leikmaður Liverpool, Chelsea og enska landsliðsins, lék 60 leiki með Stoke þau þrjú tímabil sem hann lék með liðinu.

Ireland, sem er 31 árs gamall, kom við sögu í 71 leik með Stoke en hann kom til félagsins frá Aston Villa fyrir fimm árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert