Sancho byrjaður að æfa með liðinu

Jadon Sancho í leik með Manchester United gegn Chelsea í …
Jadon Sancho í leik með Manchester United gegn Chelsea í október, en hann hefur ekkert spilað síðan. AFP/Glyn Kirk

Jadon Sancho, leikmaður Manchester United, hefur hafið æfingar með liðsfélögum sínum að nýju eftir að hafa æft einn síns liðs undanfarna mánuði.

Sancho hefur ekki spilað fyrir Man. United síðan honum var skipt af velli í 1:1-jafntefli gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni þann 22. október síðastliðinn.

Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Man. United, greindi frá því í desember að Sancho væri hvorki andlega né líkamlega reiðubúinn að æfa og spila með liðinu og því væri hann í sérstöku einstaklingsbundnu æfingaprógrammi.

Sancho sneri aftur á æfingasvæði liðsins í síðustu viku og hélt áfram einstaklingsþjálfun sinni en í gær æfði hann loks með liðsfélögum sínum á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert