Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Glen Johnson stakk upp á óvæntum stjóra til að taka við karlaliði Liverpool eftir að yfirstandandi tímabili lýkur.
Jürgen Klopp lætur af störfum eftir tímabilið eftir níu farsæl ár þar sem Liverpool hefur unnið flestalla bikara sem í boði eru.
Hefur félagið verið í mikilli leit að næsta stjóra en efstur á óskalista þess er Spánverjinn Xabi Alonso, stjóri Bayer Leverkusen.
Glen Johnson, sem lék í sex ár með Liverpool, er hins vegar með aðrar hugmyndir og vill að félagið íhugi Gareth Southgate, landsliðsþjálfara Englands.