Fór fögrum orðum um Arsenal-manninn

Martin Ödegaard er fyrirliði Arsenal.
Martin Ödegaard er fyrirliði Arsenal. AFP/Justin Tallis

Norðmaðurinn Oscar Bobb, kantmaður Manchester City, er ánægður með samherja sinn hjá norska landsliðinu í fótbolta Martin Ödegaard, fyrirliða Noregs og Arsenal. 

Arsenal og Manchester City eru, ásamt Liverpool, í mikilli baráttu um Englandsmeistaratitilinn en City fær Arsenal í heimsókn á sunnudaginn. 

Í viðtali við norska TV2 hrósaði Bobb fyrirliða sínum í hástert. „Það er sannur draumur að spila með Martin Ödegaard. Að vera með einn besta miðjumann heims gerir hlutina mun auðveldari,“ sagði Bobb.

Oscar Bobb hefur fengið mörg tækifæri hjá Manchester City á tímabilinu og skoraði frægt sigurmark gegn Newcastle undir lok leiks í janúar. 

Oscar Bobb fagnar marki með norska landsliðinu. Ödegaard klappar í …
Oscar Bobb fagnar marki með norska landsliðinu. Ödegaard klappar í bakgrunni. AFP/Annika Bryde
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert