Frá næstu vikurnar

Matty Cash í leik gegn Chelsea.
Matty Cash í leik gegn Chelsea. AFP/Adrian Dennis

Knattspyrnumaðurinn Matty Cash verður ekki með Aston Villa næstu vikurnar vegna meiðsla aftan í læri. 

Cash kom inn á í seinni hálfleik en fór af velli aðeins ellefu mínútum síðar með pólska landsliðinu gegn Eistlandi á fimmtudaginn í síðustu viku vegna meiðsla.

Mun Cash missa af mikilvægum leikjum með Aston Villa næstu vikurnar, þar á meðal gegn Lille í átta liða úrslitum Sambandsdeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert