Real sagt hafa samþykkt tilboð í Ronaldo

Cristiano Ronaldo gæti hafa leikið sinn síðasta leik fyrir Real …
Cristiano Ronaldo gæti hafa leikið sinn síðasta leik fyrir Real Madrid. AFP

Spænska knattspyrnufélagið Real Madrid hefur samþykkt 100 milljón evra tilboð frá Juventus í portúgölsku stórstjörnuna Cristiano Ronaldo ef marka má spænska miðla í dag. 

Spænski sjónvarpsþátturinn Jugones greindi frá þessu fyrst og hefur spænska vefsíðan AS einnig greint frá þessu. Ronaldo hefur verið hjá Real Madrid í níu ár, en hann gaf það í skyn eftir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu að hann væri tilbúinn að færa sig um set.  

Ronaldo hefur skorað 450 mörk í 438 leikjum fyrir Real Madrid og hefur hann verið valinn besti knattspyrnumaður heims síðustu tvö ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert