Ólafía komst ekki í gegn­um niður­skurð

Ólafía komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
Ólafía komst ekki í gegnum niðurskurðinn. AFP

Nú er ljóst að atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Kingsmill meistaramótinu í Williamsburg í Virginíu.

Vegna veðurs þurfti að klára annan hringinn í dag og mótið sömuleiðis stytt úr 72 holum niður í 54. Ólafía hafði þó lokið leik á föstudagskvöld en hún kláraði fyrstu tvo hringina á 71 höggi eða á pari. Kylfingar þurftu þó að vera á einu höggi undir pari eða á betra skori til að fara í gegnum niðurskurðinn.

Ólafía hefur því endanlega lokið keppni en hún hafnaði í 76.-91. sæti. Efstu 75 kylfingarnir komust áfram og eru að hefja þriðja og síðasta hringinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert